Hólmfríður & fjölskylda
Ég er gift Jóni Ásgeiri Tryggvasyni og eigum við eina dóttur. Ég starfa sem skólastjóri Hólabrekkuskóla í Reykjavík en heimili okkar er að Espigerði 2.
Norðfirðingafélagið
Norðfirðingafélagið er mjög góður vettvangur til að halda sambandi við brottflutta Norðfirðinga og jafnframt þá sem enn eru búsettir eystra. Ég hvet því fólk eindregið til að ganga í félagið.
05.11.2008
Komin á kreik
 Þá er ég byrjuð að setja efni á mína persónulegu fjölskyldusíðu sem fylgir þessum stórkostlega vef og vilj ég hvetja alla félagsmenn til að gera slíkt hið sama. Þannig, og einungis þannig, verður þetta síkvikur og lifandi vettvangur til skoðanaskipta og miðlunar efnis í formi texta og mynda. Brettum upp ermar og hefjumst strax handa! Þorsteinn Sigurðsson og KK, frændi min frá Sjónarhóli, eru reiðubúnir að aðstoða alla þá sem þurfa hjálp við að setja efni á vefinn.