Ég er búin að setja saman eitt myndaalbúm sem finna má hér á minni fjölskyldusíðu undir Myndir. Þetta eru gamlar myndir, svona bland í poka, sem teknar voru við margvísleg tækifæri. Ég held að það sé góð hugmynd að fólk láti vita þegar það setur upp ný myndaalbúm með því að setja jafnframt in stutta frétt, svona eins og ég er að gera núna. Sú frétt fer þá beint á forsíðu móðurvefjarins og þar geta allir séð með auðveldum hætti þegar nýjar myndir eru komnar inn.