Af mér..
Ég er Norđfirđingur í húđ og hár og eins langt aftur og ćttartöl leyfa. Ég er stolt af bćnum mínum og fagna ţessari frábćru heimasíđu hjá Norđfirđingafélaginu. Ég get tekiđ undir međ Tryggva Ólafssyni og Sigga Nobb ţegar ég segi ađ Múlinn sé fjalliđ og ég get opnađ fađminn og hneigt mig ţegar ég kem heim eftir ađ vera annars stađar á landinu eđa erlendis.
Ég lauk barnaskólanámi og fór ţađan í fyrsta bekk Gaggó ţar sem Oddur Sigurjónsson var skólastjóri. Ţađan fór ég á Eiđaskóla. Segja má ađ í dag er ég full eftirsjár ađ hafa ekki gengiđ menntaveginn, en eins og Gunnar Ólafsson sagđi ţegar hann afhenti mér verđlaun í 5. bekk fyrir mestar framfarir í landsprófsgreinum, ég tel ađ ţessi bók eigi vel viđ ţví Elma er haldin einstakri útţrá og forvitni um ađrar ţjóđir. Bókin var Fjarlćg lönd og framandi ţjóđir eftir Rannveigu Tómasdóttur. Inn í bókina skrifar Magnús Guđmundsson međ sinni einstöku fögru rithönd. Bókina hef ég marglesiđ og međal annars heimsótt tvo af ţeim stöđum sem bókin fjallar um, Mexíkó og Bahamaeyjar, á Bermuda eftir.
Ég var 10 eđa 12 ára gömul ţegar ég vann viđ ađ stakka saltfisk og 13 ára ţegar ég saltađi fyrstu síldarnar. Vann svo sem unglingur viđ síldarsöltun og í Súninu.
Ţađ vćri ađ ćra óstöđugan ađ telja allt ţađ upp sem ég hef tekiđ mér fyrir hendur en ţađ er allt frá ţví ađ vera síldarstúlka á unga aldri til ađ vera ritstjóri og blađamađur á Austurlandi um árabil og fetađi ţar í fótspor ekki ómerkari manns en Bjarna Ţórđarsonar.
Ég var gift Jóni Einari Jóhannssyni, syni Jóa sterka og Soffíu á Mel. Viđ eigum tvö börn Petrúnu Björgu fćdda 1962 og Jóhann Frey fćddan 1975. Viđ skildum fyrir nokkrum árum. Petra á 3 börn og 4 barnabörn, Jóhann á 3 börn og ţađ fjórđa á leiđinni. Ég á sem sagt tvö börn, sex barnabörn og fjögur barnabarnabörn. Sem sagt moldrík.
Í dag er ég löggilt gamalmenni. Ég er í dag formađur Félags eldri borgara á Norđfirđi, en hef áđur veriđ formađur Ţróttar og UÍA og er ekki hćgt ađ líkja ţví saman. Mér hefur hlotnast margvíslegur heiđur fyrir störf mín ađ félagsmálum og vćnst ţykir mér um gullmerki ÍSÍ, sem ég fékk 1993.
Ég ćtla ađ láta ţessa upptalningu duga ađ sinni en mun smám saman setja inn fleiri fćrslur og myndir.