Dagmar Guðmunda Þórleifsdóttir
Ég er fædd á Neskaupstað árið 1971. Foreldrar mínir eru Brynhildur M. Njálsdóttir og Þórleifur M. Friðjónsson. Ég er gift Bjarka Guðmundssyni og við eigum 2 dætur saman, þær Fanneyju Aðalheiði og Margréti Ólöfu. Við búum í Mosfellsbæ.
Ávallt til kaffi.
Þeir sem vilja geta komið við og fengið sér kaffisopa. Bara að athuga hvort ég sé ekki við ;o)
29.01.2009
Fjölskyldan mín
Foreldrar mínir eru Brynhildur M. Njálsdóttir, fædd 1951, og Þórleifur M. Friðjónsson, fæddur 1948.
Móðuramma og afi voru Fanney Aðalheiður Gunnarsdóttir og Njáll Stefánsson. Föðuramma og afi voru Dagmar Guðmunda Sigurðardóttir og Friðjón Þorleifsson.
Ég á tvö systkini, Snædísi Þórleifsdóttir, fædd 1967, sem er dóttir pabba úr fyrra sambandi og hann Friðjón Þórleifsson, fæddur 1975.
Mamma á eina systur á Neskaupstað og er það hún Auða, Auðbjörg Njálsdóttir. Önnur systkini eru látin en það voru þau Jón, Matthildur og Ólöf (Olla).
Pabbi á einnig eina systur á Neskaupstað. Hún heitir Guðbjörg O. Friðjónsdóttir eða hún Gugga. Önnur systkini hans eru Guðmunda, Guðfinnur, Sigurður og Karen Ásta.

Seinna meir á ég eftir að setja inn meiri upplýsingar og myndir en þetta er þó byrjun ;o)