Gísli Gíslason
Ég er kvæntur Bergrósu Guðmundsdóttur frá Neskaupstað. Af fyrra hjónabandi á ég tvö börn: Eyleif Ósk og Gísla Veigar, fædd 1996 og 1998. Ég starfa hjá umhverfissviði Reykjavíkurborgar.
Norðfirðingafélagið
Sá sem er fæddur eða hefur alist upp á Norðfirði verður alltaf Norðfirðingur, hvar í veröldinni sem hann er búsettur. Norðfirðingafélagið er kjörinn vettvangur fyrir þá sem vilja halda tryggð við heimahagana og er það von mín að flestir kjósi svo.
24.11.2008
ÞAKKIR !
Ólafur Egilsson á fiðlu og Hlynur Benediktsson á gítar (Búálfarnir)Allir þeir hæfileikaríku listamenn sem tóku þátt í að gera afmælis hátið Norðfirðingafélagsins svo veglega fá okkur bestu þakkir. Það er óendanlega dýrmætt að eiga aðgang að svo mörgu hæfileikaríku fólki sem allt er tilbúið að leggja sitt af mörkum fyrir félagið okkar. Sr. Svavar Stefánsson og starfsfólk Fella-og Hólakirkju, sem er orðinn fastur samastaður Norðfirðingafélagsins í Reykjavík, fá bestu þakkir fyrir samstarfið. Síðast en ekki síst þá vil ég þakka þeim fjölmörgu Norðfirðingum og öðrum sem komu á hátiðina og gerðu þetta allt að svo notalegum tíma. Ég vil svo minna á næstu viðburði félagsins:

Næsti viðburður á vegum félagsins er MORGUNKAFFI í Kaffitári í Kringlunni laugardaginn 6. desember frá kl. 09:30. Þessir viðburðir eru í umsjá Jóns Karlssonar og Hákons Aðalsteinssonar.

Þann 20. desember verður Bænastund með Sr. Svavari Stefánssyni í Fella og Hólakirkju kl. 17:00. Þessi bænastund var fyrst haldin árið 2004 þegar minnst var að 30 ár voru liðin frá snjóflóðunum í Neskaupstað. Það er ávallt hollt í jólaundirbúningnum að eiga kyrrðarstund með Norðfirðingum.

Gísli Gíslason
Formaður Norðfirðingafélagsins.