Gísli Gíslason
Ég er kvæntur Bergrósu Guðmundsdóttur frá Neskaupstað. Af fyrra hjónabandi á ég tvö börn: Eyleif Ósk og Gísla Veigar, fædd 1996 og 1998. Ég starfa hjá umhverfissviði Reykjavíkurborgar.
Norðfirðingafélagið
Sá sem er fæddur eða hefur alist upp á Norðfirði verður alltaf Norðfirðingur, hvar í veröldinni sem hann er búsettur. Norðfirðingafélagið er kjörinn vettvangur fyrir þá sem vilja halda tryggð við heimahagana og er það von mín að flestir kjósi svo.
27.11.2008
Norðfirðingar á Facebook.
Andlitssamfélagið sem heitir á hinu engilsaxneska máli Facebook vex dag frá degi. Hægt er að skrá sig á www.facebook.com og greiðir notandi ekkert fyrir aðgang. Söguna um uppruna Facebook má lesa á http://en.wikipedia.org/wiki/Facebook.

Norðfirðingar eru að sjálfsögðu margir skráðir í andlitssamfélagið og er nú búið að stofna hóp sem heitir Norðfjörður, en stofnandi er Hugi Þórðarson (Þórðar Óla og Sigrúnar Þormóðs). Í morgun voru tæplega 500 manns búin að skrá sig í þennan hóp. Þeir Norðfirðingar sem skrá sig á Facebook ættu endilega að skrá sig í hópinn "Norðfjörður" og taka þar þátt í netsamfélagi Norðfirðinga á Facebook. Norðfirðingafélagið mun tilkynna þar um atburði sem félagið mun standa fyrir.