Sigurveig Þorleifsdóttir, Norðfirðingur ættuð frá Naustahvammi er látin. Í haust hélt Norðfirðingafélagið uppá 40 ára afmæli sitt. Það var gert með tónlistarkvöldi og málverka og listasýningu. Það var vel mætt og margir burtfluttir Norðfirðingar hittust og var margur góðra vinar fundurinn.
Sigurveig Þorleifsdóttir var ein af þeim fjölmörgu sem tóku þátt í því að gera afmælishátíðina sem veglegasta. Hún sýndi falleg málverk sem merkt voru Lilla, en myndefni sótti hún í náttúruna.
Sigurveig var borin og barnfæddur Norðfirðingur en Naustahvammur var hennar æskuheimili. Mér er sagt að hún hafi haldið málverkasýningu á æskuheimiliinu í Naustahvammi. Ég hygg að slíkt sé sjaldgæft, en sýnir hlýan hug hennar til æskustöðvanna.
Fyrir hönd Norðfirðingafélagsins vill ég þakka Sigurveigu Þorleifsdóttur fyrir sitt framlag til félagsins í gegnum tíðina. Guð blessi minningu hennar. Öllum aðstandendum vottum við samúð okkar.

