Gísli Gíslason
Ég er kvæntur Bergrósu Guðmundsdóttur frá Neskaupstað. Af fyrra hjónabandi á ég tvö börn: Eyleif Ósk og Gísla Veigar, fædd 1996 og 1998. Ég starfa hjá umhverfissviði Reykjavíkurborgar.
Norðfirðingafélagið
Sá sem er fæddur eða hefur alist upp á Norðfirði verður alltaf Norðfirðingur, hvar í veröldinni sem hann er búsettur. Norðfirðingafélagið er kjörinn vettvangur fyrir þá sem vilja halda tryggð við heimahagana og er það von mín að flestir kjósi svo.
21.02.2009
Dagatöl Norðfirðingafélagsins
Fjörðurinn fagriKæru Norðfirðingar

DAGATAL NORÐFIRÐINGAFÉLAGSINS 2009.
Árið 2009 er fjórða dagatal Norðfirðingafélagsins gefið út. Dagatalinu hefur verið eintaklega vel tekið. Í ár er myndaþema félagasamtök á Norðfirði eftir 1970. Dagatalinu er dreift til allra félagsmanna í Norðfirðingafélaginu. Einnig er dagatalið selt í firðinum fagra fyrir austan. Hafi einstaklingar áhuga að fá fleiri eintök þá eru örfá eintök eftir en ég hef 8 eintök. Hægt er að panta hjá mér e-mail: gislgisl@hotmail.com. Dagatalið kostar 1500 kr.

ÞEMA DAGATALSINS 2010
Það er stefnan að koma út nýju dagatali í nóvember n.k fyrir árið 2010. Við leitum eftir hugmyndum að nýju myndaþema fyrir árið 2010. Allar hugmyndir eru vel þegnar. Þeir sem luma á góðum hugmyndum eða myndum vinsamlegast hafði samband við:

Birgir D. Sveinsson, sími 862 9431, e-mail birgird@ismennt.is
Birna Hilmarsdóttir, sími 862 8510, e-mail bih3@hi.is
Hólmfríði G. Guðjónssdóttir, sími 6648235, e-mail holmfridurgg@internet.is