Gísli Gíslason
Ég er kvæntur Bergrósu Guðmundsdóttur frá Neskaupstað. Af fyrra hjónabandi á ég tvö börn: Eyleif Ósk og Gísla Veigar, fædd 1996 og 1998. Ég starfa hjá umhverfissviði Reykjavíkurborgar.
Norðfirðingafélagið
Sá sem er fæddur eða hefur alist upp á Norðfirði verður alltaf Norðfirðingur, hvar í veröldinni sem hann er búsettur. Norðfirðingafélagið er kjörinn vettvangur fyrir þá sem vilja halda tryggð við heimahagana og er það von mín að flestir kjósi svo.
17.03.2009
Sr. Svavar Stefánsson sextugur
Sr. Svavar StefánssonSéra Svavar Stefánsson varð 60 ára þann 14. mars s.l. Það er kunnara en frá þurfi að segja að Sr. Svavar og fjölskylda tengjast Norðfirði órjúfanlegum böndum, en hann var lengi prestur fyrir austan og líta margir á hann nánast sem "sinn" prest. Þannig hafa Norðfirðingar hér syðra leitað til Sr. Svavars, bæði í gleði og sorg. Ávallt bregst Sr. Svavar vel við og Norðfirðingar meta mikils hans þjónustu og hlýju. Hann hefur verið Norðfirðingafélaginu einstaklega velviljaður. Það má segja að Fella- og Hólakirkja sé nánast orðið eins og óopinbert heimili félagsins. Þar er geymt ýmislegt dót sem tengist félaginu og margir atburðir félagsins fara fram í Fella- og Hólakirkju, eins og kyrrðarstundin 20.desember, sólarkaffi og aðalfundur, menningarkvöld félagsins svo eitthvað sé nefnt. Við erum þakklát Sr. Svavar fyrir alla aðstoð og hlýhug til félagsins. Fyrir hönd Norðfirðingafélagsins, þá sendi ég honum okkar bestu kveðjur með smá vísukorni sem ég fékk sent.





Í Neskaupstað hófstu ferilinn
þú varst kirkjunni okkar til sóma.
Sextugur ertu nú Svavar minn
og lífsgleðin ávallt í blóma.

Norðfirska kveðju við sendum þér
hana sem við teljum besta.
Guð og gæfan fylgi þér
á meðal leikmanna og presta.

Gísli Gíslason