Ég vil minna á starfsemi Norðfirðingafélagsins í haust. Á sólarkaffi félagsins í janúar sl. voru um 100 manns. Það er gaman að hitta burtflutta Norðfirðinga á fundum félagsins og maður rekst jafnvel á einstaklinga sem maður hefur ekki séð áratugum saman. Já og jafnvel einstaklinga sem maður hélt að væru farnir yfir móðuna miklu fyrir löngu. En mikilvægast er að þar hittir maður gamla og nýja félaga og á góðar stundir.Eftirfarandi er m.a. á dagskrá Norðfirðingafélagsins í haust:
4.oktober verður mánaðarlegt kaffi félagsins á Kaffitári í Kringlunni frá kl. 9.30 í umsjá Jóns Karlssonar og Hákons Aðalsteinssonar.
11.oktober verður tónlistarkvöld með norðfirskum tónlistarmönnum. Nánar augýst síðar.
1.nóvember verðurr mánaðarlegt kaffi félagsins á Kaffitári í Kringlunni frá kl. 9.30 í umsjá Jóns Karlssonar og Hákons Aðalsteinssonar.
13. nóvember verður stór dagur þá verður haldin 40 ára afmælishátið Norðfirðingafélsgsins. Það er verið að vinna í undirbúningi en m.a. verður tónlistarhátíð þann 13. nóvember í Fella og Hólakirkju og 13-16.nóvember er samsýning norðfirskra listamanna í safnaðarheimili Fella og Hólakirkju. Allar hugmyndir um dagskrá vel þegnar.
6.desember er mánaðarlegt kaffi félagsins á Kaffitári í Kringlunni frá kl. 9.30 í umsjá Jóns Karlssonar og Hákons Aðalsteinssonar.
20. desember er Bænastund með Sr. Svavari Stefánssyni í Fella og Hólakirkju kl. 17.00. Þessi bænastund var fyrst árið 2004 þegar minnst var að 30 ár voru liðin frá snjóflóðunum í Neskaupstað. Það er ávallt hollt í jóla undirbúningnum að eiga kyrrðarstund með Norðfirðingum.

