Gísli Gíslason
Ég er kvæntur Bergrósu Guðmundsdóttur frá Neskaupstað. Af fyrra hjónabandi á ég tvö börn: Eyleif Ósk og Gísla Veigar, fædd 1996 og 1998. Ég starfa hjá umhverfissviði Reykjavíkurborgar.
Norðfirðingafélagið
Sá sem er fæddur eða hefur alist upp á Norðfirði verður alltaf Norðfirðingur, hvar í veröldinni sem hann er búsettur. Norðfirðingafélagið er kjörinn vettvangur fyrir þá sem vilja halda tryggð við heimahagana og er það von mín að flestir kjósi svo.
23.02.2010
Gamlar ljósmyndir frá Norðfirði
Fjörðurinn fagriGuðmundur Sveinsson forstöðumaður Mynda og skjalasafnsins í Neskaupstað verður í Hólabrekkuskóla:

Föstudag frá kl. 15 til 19.
Laugardag frá kl. 14 til 19.
Sunnudag frá kl. 14 til 19.

Guðmundur Sveinsonn hefur með sér mikin fjölda af gömlum ljósmyndum frá Norðfirði. Hann óskar eftir aðstoð Norðfirðinga á höfuðborgarsvæðinu við að nafngreina einstaklinga á myndum sem eru í hans fórum. Norðfirðingafélagið hvetur félagsmenn til að kíkja við í Hólabrekkuskóla og leggja sitt af mörkum til þess menningararfs sem Mynda og skjalasafn Norðfjarðar er.

Stjórn Norðfirðingafélagins."