Þarftu gott helgarfrí?
Starfsmannafélag Fjarðabyggðar (STAF) býður okkur að  leigja sumarbústað Munaðarnesi í vetur.  Helgarleiga er 15 þús.  Hafið samband við Birnu Rósu Gestsdóttir  4771699/8465527 birnarosa@simnet.is.
11.04.2010
Stjórnarfundur 10. apríl 2010
Hluti stjórnar. Fremri röö: Birna Sævarsdóttir, Hólmfríður Guðjónsdóttir (fráfarandi stjórnarmaður) og Birna Hilmarsdóttir.  Aftari röð: Vilmundur Tryggvason, Gísli Gíslason, Þorsteinn Sigurðsson, Birgir D. Sveinsson og Bjarni Ármannsson.  Stjórn félagsins hittist vanalega annan laugardag í mánuði og fer yfir starfið sem hvílir á stjórninni.  Á stjórnarfundi 10. apríl hittist stjórnin á heimili Birnu Hilmarsdóttur og fór yfir verkefnin framundan.  Farið var yfir skipulag varðandi vorferð, sjómannadagskaffið og fleiri atburði sem eru fastir liðir í verkefnum félagsins.  Einnig var farið yfir gang útsýnisskífunnar, en áætlað er að hún verði afhjúpuð heima á Norðfirði föstudaginn fyrir verslunarmannahelgi. Því miður er myndin sem fylgir hreyfð, en það skrifast á hláturskast ljósmyndara, en alltaf er mikil gleði ríkjandi og hláturinn aldrei langt undan þegar stjórnin hittist.