Þarftu gott helgarfrí?
Starfsmannafélag Fjarðabyggðar (STAF) býður okkur að  leigja sumarbústað Munaðarnesi í vetur.  Helgarleiga er 15 þús.  Hafið samband við Birnu Rósu Gestsdóttir  4771699/8465527 birnarosa@simnet.is.
01.02.2011
Skýrsla stjórnar starfsárið 2010/2011

Skýrsla stjórnar Norðfirðingafélagsins 2010 (2011)

 

Starfsárið hófst hér á þessum stað í Fella og Hólakirkju í Sólarkaffinu eftir síðasta aðalfund. Þar lék hljómsveit lög eftir Svavar Lárusson og Þórunn Lárusdóttir frænka Svavars söng.  Svavari voru  afhentar nótur af lögum hans sem Hlöðver Smári Haraldsson hafði ritað.  Magnús Stefánsson kynnti svo austfirska ritið Gletting. 

Það eru trúlega mörg ár síðan það hefur verið eins vel mætt og á þetta sólarkaffi en það voru um 120 manns og það þrátt fyrir að á sama tíma lék Ísland um bronsið á heimsmeistaramótinu í handknattleik.

Á fyrsta stjórnarfundi skipti stjórnin með sér verkum og var verkaskipting eftirfarandi í föst embætti.

·        Gísli Gíslason formaður

·        Bjarni Freyr Ágústsson varaformaður

·        Íris Másdóttir gjaldkeri

·        Birna Hilmarsdóttir, ritari

·        Þorsteinn Sigurðsson vefstjóri

·        Aðrir meðstjórnendur.

Laugardagskaffi  Norðfirðingafélagins var á síðasta starfsári haldið eins og undanfarin ár  fyrsta laugardag í mánuði á Kaffitár í Kringlunni.  Það voru Jón Karlsson og Hákon Aðalsteinsson sem sáu um þennan fasta þátt í starfsemi félagsins.  Almennt er mæting ágæt en breytileg eftir árstíðum.

Heimasíðan okkar gegnir mikilvægu hlutverki og þar er nú að finna ýmsan fróðleik sem jafnvel er ekki annarsstaðar.  Má þar nefna efni um bæði Svavar Benediktsson og Svavar Lárusson.  Þorsteinn Sigurðsson vefstjóri félagsins hefur séð um að setja á vefinn bæði myndir og texta af viðburðum félagsins.  Við hvetjum félagsmenn til að senda honum myndir og efni til að setja á vefinn.

Vorganga Norðfirðingafélagsins var haldin laugardaginn 16. maí og farið til Viðeyjar.  Það mættu um 50 manns og hefur aldrei verið fleiri í vorgöngunni.  Út í Eyju  fékk hópurinn fyrirlestur frá Guðlaugu Sigurðardóttur staðarhaldara um sögu eyjunnar og ábúendur hennar. Að því loknu dreifðist hópurinn um alla eyju enda misjafnt hvað menn vildu skoða.  Að lokum var aftur safnast saman og siglt aftur heim á leið.  Gunnar Karl Guðmundsson hafði umsjón með þessari ferð.

Sjómannadagskaffi félagsins var haldið á Kaffi Reykjavík þann 7. júní s.l.  Þar mættu tæplega 100 manns. Ekki var um eiginlega dagskrá að ræða heldur var tilgangurinn fyrst og fremst að félagsmenn hittust í kaffi á þessum degi sem skipar svo veigamikinn sess í  lífi okkar og á heimaslóðum.  Birna Sævarsdóttir og Íris Másdóttir  höfðu umsjón með kaffinu.

Vígsla útýsýnisskífunnar  var þann 30. Júní sl. sem Norðfirðingafélagið gefur Fjarðabyggð  til minningar um þá höfðinglegu gjöf afkomenda Herberts Alfreðs Jónssonar er þau gáfu félaginu íbúð hans að Hafnarbraut 54.  Vígslan fór fram þann 30.júlí 2010 kl. 15.00.  Gísli Gíslason formaður flutti stutt erindi um starfsemi Norðfirðingafélagsins, Hólmfríður Guðlaug Guðjónsdóttir gerði grein fyrir undibúningi og framkvæmd verkefnisins og þakkaði öllum þeim sem lögðu verkefninu lið á einn eða annan hátt.  Jón Bjarnason og Konráð A. Ottósson léku sjómannalög.  Helga Jónsdóttir bæjarstýra þakkaði gjöfina fyrir hönd Fjarðabyggðar. Synir Herberts, þeir Stefán, Tryggvi og Víðir, vígðu svo skífuna.  Fjölmargir voru viðstaddir vígsluna sem fór fram í blíðskapar veðri við upphaf Neistaflugs í Neskaupstað.

Það er óhætt að segja að þetta er  viðamesta verkefni sem félagið hefur ráðist í.  Þegar íbúðin að Hafnarbraut 54 var seld í samráði og með samþykki afkomenda Herberts, þá var ákveðið að félagið myndi ánafna hluta af söluverðinu til minningar um þessa gjöf  til félagsins.   Það kemur glöggt fram í ársreikningnum nú á eftir að félagið var að ganga á eigið fé, en þetta er einu sinni ráðstöfun.  Útsýnisskífan  stendur í áratugi og er félaginu til sóma og sýnir hlýjan hug félagsins til heimabyggðar.  Margir komu að þessu verki en að öðrum ólöstuðum þá var verkefnisstjóri Hólmfríður G. Guðjónsdóttir.  Hún eyddi miklum tíma í þetta verk (HGG standi upp og klappað fyrir henni).

 Haustganga Norðfirðingafélagsins var 25.september um gamla miðbæ Reykjavíkur undir leiðsögn Rögnu Ólafsdóttir.  Það var góður hópur, sem taldi tæpa tvo tugi, er lét súldar veður ekki aftra sér frá því að mæta. Launin voru góð morgunganga um gamla miðbæinn með góðri leiðsögn Rögnu og þökkum henni fyrir gott framlag.

Tónlistarkvöld Norðfirðingafélagsins var svo haldið  8. Október á Spot en norðfirska hljómsveitin Mono lék fyrir dansi.   Ekki var um eiginlega dagskrá heldur hugsunin að valin hljómsveit gæti auglýst skemmtun í nafni félagsins og fengið Norðfirðinga á ball.  Árgangur 1959 hittist þar og þar var fjölmenni af fólki  og Norðfirðingar í bland.

 

Menningarkvöld Norðfirðingafélagsins.

 Þann 18. nóvember 2010 var haldið í Fella– og Hólakirkju Menningarkvöld Norðfirðingafélagsins, tileinkað Inga T. Lárussyni. Fyrstur á dagskrá var Pétur Óskarsson, sem flutti norðfirsk gamanmál. Næst var sýnd hreyfimynd af síldveiðum á Birting NK 119 frá árinu 1967 sem Ingvar Níelsson tók.

Aðalefni kvöldsins var umfjöllun um stórskáldið Inga T. Lárusson. Það var dóttursonur skáldsins Ingi Tómas Björnsson, borinn og barnfæddur Norðfirðingur, búsettur í Vestmannaeyjum sem fjallaði um ævi afa sins. 

Einnig fjallaði Sveinn Snorrason bróðursonur tónskáldsins, um manninn Inga T. sem hann þekkti persónulega í lifanda lífi. Sveinn er Seyðfirðingur að uppruna. Frásagnir Inga og Sveins um tónskáldið og manninn Inga T. voru einlægar og fallegar.

Norðfirsku tónlistarmennirnir, Hlöðver Smári Haraldsson, Bjarni Freyr Ágústsson, Auður Helga Kristinsdóttir, Ragnar Á. Sigurðsson og Davíð Samúelsson fluttu lög Inga T. Lárussonar.

Á eftir var boðið uppá kaffi og konfekt í boði Nóa og Freyju. Sýndar voru ljósmyndir frá Norðfirði og voru flestar myndir fengnar með leyfi eiganda af veraldarvefnum. Það voru um 200 manns sem mættu og áttu ánægjulega kvöldstund. Norðfirðingafélagið þakkar öllum þeim er lögðu hönd á plóginn við að gera þetta að svona ánægjulegri kvöldstund.

Bæna og kyrrðarstund.   Þann 20. desember 2010 var haldin í Fella– og Hólakirkju hin árlega kyrrðarstund Norðfirðingafélagsins. Sr. Svavar Stefánson og Kristján Högnason fluttu erindi. Jafnframt var flutt tónlist og gestir sungu að lokum Heims um ból. Þessi fallega athöfn er mikilvægur þáttur í reglulegri starfsemi Norðfirðingafélagsins.

Dagatal félagsins kom út í haust og var sent til allra félagsmanna og var sendur út giro til félagsmanna uppá kr. 1500.  Dagatalið var einnig selt í heimabyggð fyrir jól.    Þema dagtalsins var iðnaður á Norðfirði.  Birgir D. Sveinsson, Birna Hilmarsdóttir og Gísli Gíslaon ásamt fleirum sáu um þetta verk en mikilvægur þáttur í þessu er ákaflega gott samstarf við Guðmund Bjarnason á Norðfirði.

Norðfirðingur  fréttabréf félagsins kom 4 sinnum út á árinu eins og fyrri ár.

Sem hluti af skýrslu stjórnar þá leggjum við til að ársgjald félagsins  verði áfram kr. 1500. Ársgjaldið er sent út til allra félagsmanna en ef ekki er greitt af einhverjum ástæðum þá er  folk  áfram í félaginu nema það kjósi annað.  Aðstæður folks eru breytilegar en við erum þakklát öllum sem greitt hafa ársgjaldið.   Í dag eru tæplega 380 manns á félagaskrá.

 

Einnig sem hluti af skýrslu stjórnar legg ég til tillögur um nýja stjórn:

·        Vildís Björgvinsdóttir

·        Kristján T. Högnason

·        Guðrún Kristín Einarsdóttir

·        Sveinn Ásgeirsson ??

·        Sigurður Þorbergsson

·        Jón Karlsson

·        Þorsteinn Sigurðsson

·        Íris Másdóttir

·        Vilmundur Tryggvason

 

Varastjórn:

·        Hákon Aðalsteinsson

·        Gunnar Karl Guðmundsson

·        Davíð Samúelsson

·        Birgir D. Sveinsson

·        Birna Hilmarsdóttir

·        Gísli Gíslason

Hér að lokum þá er hér að vanda kaffihlaðborð, við hlýðum á tónlist, sönghópurinn Rakarasvið MS og ég mun segja aðeins frá Norðfirskum Víkingum í Ástralíu.   Að lokum við þakkum öllum þeim sem lögðu á sig mikla og óeigingjarna vinnu fyrir félagið á liðnu ári og árum.

 

 

Gísli Gíslason formaður

Aðalfundur 30. Jan 2011