stjorn@nordfirdingafelagid.is     822-1709
   
Leturstærð
Þarftu gott helgarfrí?
Starfsmannafélag Fjarðabyggðar (STAF) býður okkur að  leigja sumarbústað Munaðarnesi í vetur.  Helgarleiga er 15 þús.  Hafið samband við Birnu Rósu Gestsdóttir  4771699/8465527 birnarosa@simnet.is.

Fréttir

Davíð samúelsson, skipuleggjandi og bílstjóri hópsins.13.05.2012
Vel heppnuð ferð á Suðurnesin.
Hér má nálgast glóðvolgar myndir úr vorferð félagsins sem farin var laugardaginn 12. maí 2012. Reynir Sveinsson var fararstjóri í ferðinni og fræddi hann hópinn um svæðið og tengdi við veru Norðfirðinga á svæðinu á fyrri árum.   Eru ekki ...
Frá vorferð félagsins í Hafnarfjörð 201106.05.2012
Vorferð félagsins - skráning hafin
Stjórn Norðfirðingafélagsins hefur ákveðið að breyta út af venjunni og hafa vorferð í stað árlegrar vorgöngu í ár. Ferðin verður laugardaginn 12. maí og haldið verður um slóðir norðfirskra sjómanna til Sandgerðis . Lagt verður af stað kl 13:00 frá BSÍ með rútu ...
03.05.2012
Erindi Þóris Sigurbjörnssonar á Sólarkaffi
Eins og fram kemur í nýútkomnu fréttabréfi hélt Þórir Sigurbjörnsson stórskemmtilegt erindi um Hallmundarhraun og hella sem þar finnast.   Fyrir ykkur sem ekki mættuð á sólarkaffið er hægt að nálgast erindi Þóris hér.
03.05.2012
Nýr Norðfirðingur kominn út
Nýjasta fréttabréfið má nálgast hér:  
 12.03.2012
... og nú er komið að því! Austfirðingaball á Spot í Kópavogi
Hið margrómaða Austfirðingaball verður haldið á Spot í Kópavogi laugardaginn 17. mars. Þessir dansleikir hafa fyrir löngu fest sig í sessi og ávallt er vel mætt af Austfirðingum og vinum þeirra.   Allir eru velkomnir sem vilja upplifa alvöru ...
Þétt setinn bekkurinn í Hlégarði19.02.2012
Myndir frá þorrablóti félgasins
Nú eru loksins komnar inn myndir frá þorrablótinu. Eins og sjá má á myndunum sem skoða má hér, ríkti mikil gleði og var vel mætt, en um 220 manns voru við borðhaldið. Bestu þakkir til allra sem aðstoðuðu við að gera ...
28.01.2012
Þorrablót- matseðill og borðapantanir
Nú er miðasalan í fullum gangi og við hvetjum alla til að tryggja sér miða sem fyrst. Leiðbeiningar er bæði að finna í fréttabréfinu og einnig er hægt að nálgast þær hér.  Þeir sem vilja panta ákveðin fjölda sæta saman ...
Hlégarður 25.01.2012
Þorrablót - 4. febrúar
Þorrablót Norðfirðingafélagsins Verður haldið laugardaginn 4. febrúar kl. 20:00 í félagsheimilinu Hlégarði Mosfellsbæ. Barinn opnar kl. 19:30Miðaverð: 5. 500 kr. Innifalið í verðinu er frábær þorramatur, skemmtun og hljómsveitin ,,Alþjóðlega bandið” mun spila fyrir dansi. Valin atriði verða flutt frá  “Alla-balla” blótinu,  flutt verður minni ...
 21.01.2012
Minnum á aðalfund og sólarkaffi
Minnum á aðalfund og sólarkaffi félagsins, sem haldið verður í safnaðarheimili Fella- og Hólakirkju sunnudaginn 22. janúar kl. 14. Dagskrá aðalfundar er hefðbundin, þ. e. setning, skýrsla stjórnar, ársreikningar og önnur mál. Minnum líka á að þar verður jafnframt miðasala á ...
21.01.2012
Nýr Norðfirðingur kominn
Nýr Norðfirðingur, fréttabréf félagsins er komið út og verið sent til félgasmanna. Einnig er hægt að lesa hann hér.  
Norðfjarðarkirkja (Ljósm: Ásmundur Jónsson).24.12.2011
Jólakveðja
Norðfirðingafélagið sendir félagsmönnum sem og Norðfirðingum um heim allann bestu kveðjur um gleðilega jólahátið og farsældar á komandi ári.   Jafnframt þakkar félagið öllum velunnurm félagsins framlag þeirra til viðburða félagsins á árinu sem er að líða.   Stjórnin ...
Raqnhildur Ásgeirsdóttir Djákni22.12.2011
Hátíðleg stund í Fella- og Hólakirkju
Það er orðinn árlegur viðburður að Norðfirðingafélagið standi fyrir minningarathöfn um snjóflóðin sem urðu í Neskaupstað þann 20. desember 1974. Ragnhildur Ágeirsdóttir djákni sá um athöfnina í fjarveru Sr. Svavars Stefánssonar sem eyðir jólunum í faðmi ...
 19.12.2011
Munum eftir kyrrðarstundinni í Fella- og Hólakirkju kl. 17 á morgun, þriðjudag.
Á morgun, Þriðjudaginn 20. desember verður Bænastund í Fella og Hólakirkju kl. 17. 00. Þessi kyrrðarstund var fyrst haldin árið 2004 þegar minnst var að 30 ár voru liðin frá snjóflóðunum í Neskaupstað. Í ár eru 37 ár frá því að ...
Forsíða dagatals Norðfirðingafélagsins 201208.12.2011
Dagatalið hefur verið sent til félagsmanna
Dagatal félagsins fyrir árið 2012 hefur verið sent út til félgasmanna ásamt kröfu í heimabanka.   Einnig er hægt að nálgast dagatalið í glugganum hér til hægri. +Hægt er að nálgast aukaeintök með því að senda póst á einhvern stjórnarmeðlima. Kv. Stjórnin
Gísli Gíslason og Sigurður Þorbergsson, kynnar kvöldis18.11.2011
Þið eruð frábær
Kæru félagar í Norðfirðingafélaginu.   Stjórn félagsins þakkar frábærar viðtökur og mætingu á menningarkvöld félagsins í gærkvöldi.   Það er mikil ánægja fyrir þá sem komu að því að setja saman dagskránna og flytja hana hversu vel var mætt, en okkur taldist ...
Forsíða þriðja tölublaðs 37. árgans af glansritinu Norðfirðingur16.11.2011
Fréttabréfið komið út
Þriðja tölublað fréttabréfsins ætti að vera komið í hús til félagsmanna, en þar er ýmislegt fróðlegt að finna og margar myndir príða blaðið.   Þeir sem vilja skoða myndirnar nánar í lit er bent á að hægt er að skoða það ...
Jólakveðjubæklingurinn árið 201016.11.2011
Viltu senda jólakveðju til Norðfirðinga?
Blakdeild Þróttar hefur á undanförnum árum gefið út bækling fyrir jólin.   Er um að ræða jólakveðjur til Norðfirðinga og er bæklingurinn borinn út í hvert hús á Norðfirði. Hefur þessi bæklingur þótt skemmtilegur að lesa og margir notað hann til að ...
 13.11.2011
Menningarkvöld félagsins haldið næstkomandi fimmtudagskvöld
Hið árlega Menningarkvöld Norðfirðingafélagsins verður haldið í Fella– og Hólakirkju þann 17. nóvember n. k og hefst kl. 20. 00.    Kvöldið verður tileinkað Haraldi Kristni Guðmundssyni prentara og tónlistarmanni.   Fjallað verður um ævi hans í máli og myndum og flutt tónlist.   Á eftir ...
Laugardagskaffi í kringlunni 3. september.19.09.2011
Félagið að vakna eftir sumardvala
Nú þegar sumrinu er lokið fer sá tími í hönd að starfsemi félagsins glæðist til mikilla muna. Þó starfsemin hafi verið í lægð í sumar þá féll laugardagskaffi í Kringlunni aldrei niður og oft var góð mæting og margt skrafað. Meðfylgjandi ...
19.09.2011
Norðfirðingar í Fjallabyggð
Fimmtíu og átta manna hópur úr Félagi eldri borgara á Norðfirði leggur land undir hjól og fer norður í Fjallabyggð í fjögurra daga ferð dagana 20. -23. september. Gist verður þrjár nætur á Ólafsfirði og farnar skoðanaferðir þaðan meðal ...

til baka 1 2 3 4 5 6 7 8 9 næsta síða