stjorn@nordfirdingafelagid.is     822-1709
   
Leturstærð
Þarftu gott helgarfrí?
Starfsmannafélag Fjarðabyggðar (STAF) býður okkur að  leigja sumarbústað Munaðarnesi í vetur.  Helgarleiga er 15 þús.  Hafið samband við Birnu Rósu Gestsdóttir  4771699/8465527 birnarosa@simnet.is.
04.05.2010
Myndlist austfirskra kvenna
 Hópur austfirskra kvenna sem allar eru búsettar á Norðfirði munu sýna myndir og málverk í kaffihúsinu Gónhól á Eyrarbakka frá 4.- 30. júní 2010.

Allar eru konurnar starfandi við önnur störf en áhugi þeirra á myndlist til margra ára hefur sameinað þær í einn hóp sem starfað hefur saman í um 12-15 ár í húsnæði Listasmiðjunnar, Þórsmörk.

Gegnum árin hafa þær sótt námskeið, utan lands sem innan en einnig haldið námskeið fyrir almenning sem leidd hafa verið af hinum ágætustu listamönnum s.s. Öldu Ármönnu Sveinsdóttur,  Þuríði Sigurðardóttur, Valgarði Gunnarssyni og Kristbergi Péturssyni svo einhverjir séu nefndir.

Konurnar eru:  Anna Bjarnadóttir, garðyrkjufræðingur;  Berglind Þorbergsdóttir, aðalbókari;  Hildur B. Halldórsdóttir, ljósmóðir; María Teresa Goncalves, hjúkrunarfræðingur og Theodóra Alfreðsdóttir, bóndi.

Flestar eru myndirnar unnar í olíu og akrýl en einnig vatnslitum og er meginþema myndanna gjarnan tekið úr austfirsku umhverfi s.s. fjöllin og fjörðurinn en einnig gætir þar fleiri grasa.

Sýningin er styrkt af Hlaðvarpanum, Menningarsjóði  kvenna á Íslandi og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir.