
Við þökkum fyrir ábendingar um nöfn á myndinni sem fylgir þessari frétt og við báðum um í síðustu viku. Elma vinkona okkar og fréttaritari vefsíðunnar fór með myndina í Sigfúsarhúsið fyrr í dag. Sagði hún skiptar skoðanir hafa verið um það hverjir þarna væru - vildu sumir meina að þetta hefði bara alls ekki verið skipshöfn Goðanesins! Hinsvegar þekkti Herbert Benjamínsson (sem flestir ef ekki allir þekkja sem Hebba Ben) nokkra fyrrverandi skipsfélaga, en Hebbi var á Goðanesinu á sínum tíma. Mennirnir eru, frá vinstri til hægri: Óli (kallaður Bobbingur - hann fórst með Júlí), óþekktur, óþekktur (situr fremst á mynd), Guðmundur Ingi Guðmundsson, Jónas Árnason, Sigdór Sigurðsson.
Hebbi þekkti ekki tvo af mönnunum á myndinni og því er hér með skorað á þá sem þekkja þá að gefa sig fram og senda upplýsingarnar á netfangið steini@hafro.is.
Einnig eru fleiri myndir hér með mönnum sem enn hafa ekki verið borin kennsl á og ábendingar vel þegnar.

