
Laugardaginn 16. maí var farið í vorferð félagsins. Að þessu sinni var hin sögufræga eyja Viðey fyrir valinu. Þáttaka var góð, en um 50 manns mættu að þessu sinni. Eftir að komið var út í Eyju fyrir hádegi fékk hópurinn fyrirlestur frá Guðlaugu Sigurðardóttur staðarhaldara um sögu eyjunnar og ábúendur hennar. Að því loknu dreifðist hópurinn um alla eyju enda misjafnt hvað menn vildu skoða. Að lokinni göngu var safnast saman við Viðeyjarstofu og ýmist nestið rifið upp úr bakpokum eða veitingar keyptar. Að því búnu var haldið til lands með ferjunni og þangað var komið Eins og sjá má á myndunum sem skoða má hér var veðrið með allra besta móti, sól 12 stiga hiti og hægur vindur og gerði það daginn enn skemmtilegri.
Þeir sem tóku myndir mega gjarnan senda þær á vefstjóra (steini@hafro.is) og við bætum þeim með í myndasafnið hér á síðunni.

