stjorn@nordfirdingafelagid.is     822-1709
   
Leturstærð
Þarftu gott helgarfrí?
Starfsmannafélag Fjarðabyggðar (STAF) býður okkur að  leigja sumarbústað Munaðarnesi í vetur.  Helgarleiga er 15 þús.  Hafið samband við Birnu Rósu Gestsdóttir  4771699/8465527 birnarosa@simnet.is.
01.07.2010
Kelahæðin
Sjóhúsin á myndinni eru sjóhús Hjartar Arnfinnssonar og Sævars Jónssonar Morits. Þeir standa nokkru austar en “Kelaskúrarnir” stóðu. Ljósm. Elma GuðmundsdóttirAllir Norðfirðingar þekkja Kelahæðina og þeir elstu muna eftir Kelaskúrunum. Aðrir skúrar standa nú þar og tengjast ekkert þessari frásögn.
   Í byrjun 20. aldarinnar þótti vænlegt að stunda útróðra frá Norðfirði, stutt var á fengsæl fiskimið. Bryggjur og bryggjustúfar voru þá meðfram allri ströndinni allt að 40 talsins.
   Meðal þeirra sem stunduðu útróðra frá Norðfirði á þessum tíma voru þremenningarnir; Stjáni blái, Kristján Jónsson , en um hann gerði Örn Arnarson kvæðið ódauðlega um Stjána bláa, Oddur Sigurgeirsson sem kallaður var "hinn sterki af Skaganum" og Sæmundur sífulli, sem þótti bera nafn með rentu. Ekki versnaði flóran í Kelaskúrnnum þegar þeir þremnningarnir fengu sér ráðskonu, var hún frá Vestmannaeyjum og bar hún hið geðþekka nafn Lauga lausgirta. Og segir Þorsteinn Víglundsson í bók sinni um viðurnefni manna í Vestmannaeyjum að það nafn hafi hún borið með rentu.

Sjóhúsin á myndinni eru sjóhús Hjartar Arnfinnssonar og Sævars Jónssonar Morits. Þeir standa nokkru austar en “Kelaskúrarnir” stóðu. Ljósm. Elma.

Elma Guðmundsdóttir tók saman. Heimildir Norðfjarðarsaga og fleiri skriflegar heimildir.