stjorn@nordfirdingafelagid.is     822-1709
   
Leturstærð
Þarftu gott helgarfrí?
Starfsmannafélag Fjarðabyggðar (STAF) býður okkur að  leigja sumarbústað Munaðarnesi í vetur.  Helgarleiga er 15 þús.  Hafið samband við Birnu Rósu Gestsdóttir  4771699/8465527 birnarosa@simnet.is.
03.08.2010
Vígsla útsýnisskifu
Ljósm: Gunnar ÞorsteinssonVígsla útsýnisskífunnar sem gefin er til minningar um Herbert Alfreð Jónsson fór fram þann 30.júlí 2010 kl. 15.00.  Gísli Gíslason formaður flutti stutt erindi um starfsemi Norðfirðingafélagsins, Hólmfríður Guðlaug Guðjónsdóttir gerði grein fyrir undibúningi og framkvæmd verkefnisins og þakkaði öllum þeim sem lögðu verkefninu lið á einn eða annan hátt.  Jón Bjarnason og Konráð A. Ottósson léku sjómannalög.  Helga Jónsdóttir bæjarstýra þakkaði gjöfina fyrir hönd Fjarðabyggðar. Synir Herberts, þeir Stefán, Tryggvi og Víðir, vígðu svo skífuna.  Fjölmargir voru viðstaddir vígsluna sem fór fram í blíðskapar veðri við upphaf Neistaflugs í Neskaupstað. Fleiri myndir frá vígslunni má sjá hér.  Gunnar Þorsteinsson tók myndirnar.