Heiðursmaðurinn og Norðfirðingurinn Stefán Þorleifsson er 95 ára í dag, 18. ágúst 2011. Það er óþarfi að kynna Stefán fyrir Norðfirðingum. Hann stundar bæði skíði, golf og sund og er virkur á margvíslegan hátt í samfélaginu eystra eins og hann hefur raunar verið alla ævi. Norðfirðingafélagið stendur í þakkarskuld við Stefán. Hann er auðvitað góð fyrirmynd allra en hann hefur einnig sýnt Norðfirðingafélaginu vinsemd á margvíslegan hátt. Á árdögum félagsins var hann og Guðrún kona hans heiðursgestir á árshátíð félagsins og árið 2009 heiðraði hann okkur enn og aftur með að halda hátíðarræðu á Menningarkvöldi Norðfirðingafélagsins. Kvöldið var helgað 80 ára afmæli Neskaupstaðar, sem fékk kaupstaðarréttindi árið 1929. Stefán hélt afbragðs góða og fræðandi ræðu um Norðfjörð fyrr og nú. Myndin sem hér fylgir er frá þeim viðburði.
Á þessum tímamótum sendir Norðfirðingafélagið Stefáni bestu afmæliskveðjur heim í fjörðinn fagra.

