Á morgun föstudaginn 9. september og laugardaginn 10. september kl. 16.00-19.00 verður Guðmundur Sveinsson með myndasýningu í ORG ættfræðinþjónusut af gömlum myndum frá Norðfirði. Tilgangurinn er að fá Norðfirðinga að nafngreina fólk á myndum sem er í fórum Mynda og skjalasafnsins, sem Guðmundur starfar við.Sýningarnar verða í húsnæði Ættfræðiþjónustu ORG að Skeljanesi í Reykjavik, http://www.simnet.is/org/. Staðurinn er þar sem leið 12 endar hjá Strætó. Það er keyrt fram hjá Reykkjavíkurflugvelli flugvellinum, Suðurgatan á enda yfir Einarsnes og endað á Skeljanesi þar sem ORG er staðsett sjávarmeginn við Flugvöllinn.
Norðfirðingafélagið hvetur sem flesta til að mæta og hjálpa til við að nafngreina fólk á myndum og skrásetja þannig ómetanlegar heimildir fyrir heimabyggðina.
Upplýsingar gefur Guðmundur Sveinsson í síma 845 2527

