
Nú þegar sumrinu er lokið fer sá tími í hönd að starfsemi félagsins glæðist til mikilla muna.
Þó starfsemin hafi verið í lægð í sumar þá féll laugardagskaffi í Kringlunni aldrei niður og oft var góð mæting og margt skrafað. Meðfylgjandi mynd er frá kaffinu þann 3. september. Næsta laugardagskaffi verður þann 2. október kl. 09:30 og stendur meðan einhver situr.

