stjorn@nordfirdingafelagid.is     822-1709
   
Leturstærð
Þarftu gott helgarfrí?
Starfsmannafélag Fjarðabyggðar (STAF) býður okkur að  leigja sumarbústað Munaðarnesi í vetur.  Helgarleiga er 15 þús.  Hafið samband við Birnu Rósu Gestsdóttir  4771699/8465527 birnarosa@simnet.is.
16.11.2011
Viltu senda jólakveðju til Norðfirðinga?
Jólakveðjubæklingurinn árið 2010

Blakdeild Þróttar hefur á undanförnum árum gefið út bækling fyrir jólin.  Er um að ræða jólakveðjur til Norðfirðinga og er bæklingurinn borinn út í hvert hús á Norðfirði.
Hefur þessi bæklingur þótt skemmtilegur að lesa og margir notað hann til að senda kveðjur til vina og ættingja.  Bæði fyrirtæki og einstaklingar hafa nýtt sér þessa þjónustu sem blakdeildin er með sem lið í sinni fjáröflun.  Ef einhver „gamall " Norðfirðingur hefur áhuga á því að senda jólakveðju í jólakveðjubæklinginn
sem Blakdeild Þróttar  þá má hafa samband við blakdeildina í tölvupósti (faerayjar@gmail.com) eða í síma 4771458 og 8697027

Sjá einnig á heimasíðu blakdeildarinnar sem nálgast má hér.

Verðið er hóflegt og lítur svona út:
Lína 1.000.-
Dálkur 2.500.-
¼ síða 3.500.-
½ síða 7.500.-
1/1 síða 15.000.-