Hið árlega Menningarkvöld Norðfirðingafélagsins verður haldið í Fella– og Hólakirkju þann 17.nóvember n.k og hefst kl. 20.00. Kvöldið verður tileinkað Haraldi Kristni Guðmundssyni prentara og tónlistarmanni. Fjallað verður um ævi hans í máli og myndum og flutt tónlist. Á eftir formlegri dagskrá verður kaffi og ljósmyndasýning með myndum frá Norðfirði.
Dagskrá:
Gísli Gíslason og Sigurður Þorbergsson fjalla um ævi Haraldar
Leikin verða lög af gömlum hljóðupptökum frá Norðfirði
Sigurður og Judith Þorbergsson leika samleik á básúnu og píanó
“HG Sextett” leikur, en hann skipa m.a 3 kynslóðir afkomenda Haraldar, ásamt Sigurði Þorbergssyni og Bjarna F. Ágústssyni
Kaffi og ljósmyndasýning

