
Kæru félagar í Norðfirðingafélaginu. Stjórn félagsins þakkar frábærar viðtökur og mætingu á menningarkvöld félagsins í gærkvöldi. Það er mikil ánægja fyrir þá sem komu að því að setja saman dagskránna og flytja hana hversu vel var mætt, en okkur taldist til að það hafi nær 200 manns mætt.
Meðfylgjandi eru myndir sem fylgdu kynningu þeirra Gísla Gíslasonar og Sigurðar Þorbergssonar, og hér má einnig nálgast nokkrar myndir sem teknar voru í gærkvöldi. Fyrirgefð hversu dökkar sumar myndirnar eru.
Kv.
Stjórnin

