
Það er orðinn árlegur viðburður að Norðfirðingafélagið standi fyrir minningarathöfn um snjóflóðin sem urðu í Neskaupstað þann 20. desember 1974. Ragnhildur Ágeirsdóttir djákni sá um athöfnina í fjarveru Sr. Svavars Stefánssonar sem eyðir jólunum í faðmi fjölskyldunnar í Mexíkó.
Orgelleikari kirkjunnar, Guðný Einarsdóttir spilaði jafnframt 2 lög og í lokin sungum við saman sálminn Heims um ból eftir Sveinbjörn Egilsson.Að lokinni athöfninni var kaffi í boði félagsins og hér má sjá nokkrar myndir sem þar voru teknar.
Norðfirðingafélagið þakkar Raghnildi og Gunýju fyrir fallega athöfn og velvild í garð félagsins.
