
Á morgun, Þriðjudaginn 20. desember verður Bænastund í Fella og Hólakirkju kl. 17.00. Þessi kyrrðarstund var fyrst haldin árið 2004 þegar minnst var að 30 ár voru liðin frá snjóflóðunum í Neskaupstað. Í ár eru 37 ár frá því að þessir hræðilegu atburðir áttu sér stað. Við hvetjum alla norðfirðinga til að mæta. Kaffi og piparkökur að lokinni athöfn.
Endilega látið vini og kunningja að austan vita af þessum viðburði félagsins. 


