
Bókaúgáfan Hólar gaf nýlega út bókina Galar hann enn! Gamansögur af Norðfirðingum og nærsveitungum. Það er Elma Guðmundsdóttir sem tekið hefur efnið saman og er þetta hvort tveggja í senn; fyrsta skiptið sem austfirskar gamansögur koma út í bók og ennfremur í fyrsta sinn sem kona stendur að baki gamansagnabókar.
Bók eins og þessi kryddar auðvitað upp á tilveruna og því er við hæfi að birta hér nokkrar sögur úr henni:
Skoðanakannanir eru ekki svo gamalt fyrirbæri en gætu þó verið allt að 30 ára gamlar hér á landi.
Í sveitarstjórnarkosningunum í vor stóðu Fréttablaðið og Stöð2 fyrir könnun um fylgi framboðanna í Fjarðabyggð. Stuttu síðar var hún til umræðu á kosningarskrifstofu Fjarðalistans í Neskaupstað og áttu þau það sameiginlegt Smári Geirsson og Elma Guðmundsdóttir að hafa aðeins tvisvar sinnum lent í skoðanakönnunum. Þessari könnun og svo annarri sem gekk út á hvaða bílategund viðkomandi hefði mest dálæti á. Elma var ekki lengi að nefna ameríska bílategund en Smári nefndi Lödu. Þá varð löng þögn í símanum hjá Smára en loks kom:
„Ég ber spurninguna upp aftur.“
*
Það var á eftir síldarárum þegar einungis var saltað var hjá SVN og einum öðrum stað í Neskaupstað að einn matsmaðurinn á plani SVN, Jóhannes Sveinbjörnsson, bauð til lokahófs. Ekki vildi betur til en í veislulok, þegar vertinn var sofnaður, að eldur braust út í húsinu. Jóhannes vaknaði við vondan draum og komst út en nokkrar skemmdir urðu á húsinu. Í síldartörnunum söltuðu konur ekki alltaf á sama planinu, þær voru eins og verkamennirnir á Eyrinni, sóttu vinnu þar sem vinnu var að hafa. Ein þessara kvenna var Stella Steinþórsdóttir sem alla jafna var kölluð Stella stóra, en hún er frekar hávaxin, það lætur líka hátt í henni og svo er hún fljót að svara fyrir sig. Hún var í partýinu hjá Jóa. Svo gerist það að Stella var við söltun hjá Gylfa Gunnars og þar var partý, að til hennar kemur kona og segir við hana í gamansömum tón:
„Er það satt að sokkabuxurnar þínar hafi brunnið inni í partýinu hjá Jóa?“
„Nei,“ svaraði Stella að bragði, „ég fór aldrei nema úr annarri skálminni.“
Nánar má lesa um bókina á vefsíðu útgáfunnar þar sem einnig má panta bókina.

