
Myndir frá Menningarkvöldinu eru komnar á vefinn og má nálgast hér. Kvöldið var mjög skemmtilegt, en það var helgað tónskáldinu Inga T. Lárussyni. Margir lögðu hönd á plóginn til að gera kvöldið skemmtilegt og vill stjórn Norðfirðingafélagsins þakka þeim öllum fyrir þeirra framlag. Fleiri myndir munu birtast á næstu dögum frá kvöldinu og jafnframt mun tónskáldinu Inga T verða gerð betri skil þannig að þeir sem ekki gátu notið kvöldsins í Fella- og Hólakirkju geti fengið að njóta.
Það er líka hægt að nálgast fleiri myndir á heimasíðu Ásmundar Jónssonar.

