stjorn@nordfirdingafelagid.is     822-1709
   
Leturstćrđ
Ţarftu gott helgarfrí?
Starfsmannafélag Fjarðabyggðar (STAF) býður okkur að  leigja sumarbústað Munaðarnesi í vetur.  Helgarleiga er 15 þús.  Hafið samband við Birnu Rósu Gestsdóttir  4771699/8465527 birnarosa@simnet.is.
21.12.2010
Hátíđleg stund í Fella og Hólakirkju
Sr. Svavar Stefánsson og Kristján Tryggvi Högnason.

Það er orðinn árlegur viðburður að Norðfirðingafélagið í samstarfi við séra Svavar Stefánsson prest í Fella- og Hólakirkju standi fyrir minningarathöfn um snjóflóðin sem urðu í Neskaupstað þann 20. desember 1974. Sr. Svavar flutti minningarorð um þá tólf sem létust þennan dag árið 1974 og mörgum norðfirðingnum er enn í fersku minni.

Kristján Tryggvi Högnason ávarpaði jafnframt samkomuna og minntist, á hjartnæman hátt, þeirra sem gengnir eru. 

Orgelleikari kirkjunnar, Guðný Einarsdóttir spilaði jafnframt 2 lög og í lokin sungum við saman sálminn Heims um ból eftir Sveinbjörn Egilsson.

Að lokinni athöfninni var kaffi í boði félagsins og hér má sjá nokkrar myndir sem þar voru teknar.

Norðfirðingafélagið þakkar sr. Svavari og Gunýju fyrir fallega athöfn og velvild í garð félagsins. Einnig okkar besta þakklæti til Kristjáns fyrir hans fallega innlegg í þessa athöfn.