
Um síðustu helgi komust Þróttarstelpurnar í blaki aftur á toppinn eftir sigur á Stjörnunni 3-0. Síðasti leikur deildarinnar, sem jafnframt verður hreinn úrslitaleikur um deildarmeistaratitilinn, verður svo á móti HK 26.mars kl. 14:30 í Digranesi.
En næsta verkefni stelpnanna er Bridgestone bikarinn sem haldinn er núna um næstu helgi 19.-20. mars . Spilað er við flottar aðstæður í Laugardalshöllinni og hvetjum við allt blakáhugafólk að mæta og horfa á það besta sem blak hefur upp á bjóða á Íslandi í dag.
Á laugardeginum kl. 14 keppir Þróttur Nes við KA í undarúrslitum og ef þær vinna þann leik er spilað til úrslita í beinni útsendingu við þá annað hvort HK eða Ými. Úrslitaleikurinn hefst kl. 13:30 á sunnudeginum en verður sýndur með seinkun og hefst útsending kl. 13:50 á RÚV.
Aðgangseyri í Laugardalshöllina er 1000 kr. fyrir hvorn dag en frítt fyrir 16 ára og yngri.
Keppnin um Íslandsmeistaratitilinn hefst svo þriðjudaginn 5.apríl en andstæðingar Þróttar ráðast af því hvernig fjögur efstu sætin raðast í deildarkeppninni.
Áfram Þróttur Nes!!

