stjorn@nordfirdingafelagid.is     822-1709
   
Leturstærð
Þarftu gott helgarfrí?
Starfsmannafélag Fjarðabyggðar (STAF) býður okkur að  leigja sumarbústað Munaðarnesi í vetur.  Helgarleiga er 15 þús.  Hafið samband við Birnu Rósu Gestsdóttir  4771699/8465527 birnarosa@simnet.is.
15.05.2011
Myndir frá vorgöngunni í Hafnarfirði

Vorganga félagsins fór fram 14. maí og í þetta sinn var það Hafnarfjörður sem Norðfirðingar ákávðu að skoða undir leiðsögn Lúðvíks Geirssonar fyrrv. bæjarstj. í Hafnarfirði. Gengið var um gamla bæinn og fræddi Lúðvík gönguhrólfa um húsin og sögu staðarins.  Eins og ávalt var góð þáttaka og voru yfir 50 Norðfirðingar sem þátt tóku í göngunni og eins og sjá má á myndum sem Vilmundur Tryggvason tók í göngunni skemmtu allir sér konunglega.  Félagið færir Lúðvík bestu þakkir fyrir skemmtilega leiðsögn.