
Elma Guðmundsóttir hefur verið dugleg við að senda vefstjóra ábendingigar og fréttir af Norðfirðingum frá því að við settum vefinn á fót. Hér er nýjasta fréttaskeytið frá Elmu.
Á fjórða tug Norðfirðinga eru núna á Hótel Örk í Hveragerði, á svokölluðum Sparidögum. Flestir eru að koma í þriðja og fjórða sinn en aðrir í fyrsta eða annað skiptið. Dagskrá er alla daga og vel veitt í mat. Hægt er að komast í styttri ferðir á vegum hótelsins. Það er mikið sungið og spilað á Ökinni núna bæði á spil og hljóðfæri. Gestir hótelsins safnast saman um sex leitið og sungið er við píanóundirleik fram að kvöldmat. Nokkrrir góðir hljóðfæraleikarar og söngvarar eru í Austfirðingahópnum, sem telur upp undir hundrað manns, og upp út klukkan fimm byrjar fjörið framan við barinn. Þar er þó ekki fjólublátt ljós!
Skemmtikraftar koma að á hverju kvöldi. Fyrsta kvöldið var tríó sem kallar sig Hjónabandið og kom öllum í stuð og í gærkveldi var grínarinn Níels Árni Lund og fékk Hnn fólk tilað grenja úr hlátri. Dvölin hérna stendur frá 18. – 23. Apríl.
Fleiri myndir frá Hveragerði má nálgast hér:
Í haust er áformað að fara á „Unaðsdaga í Hólminum“ og verður ákvörðun tekin um það á miðju sumari.
Eg.

