stjorn@nordfirdingafelagid.is     822-1709
   
Leturstærð
Þarftu gott helgarfrí?
Starfsmannafélag Fjarðabyggðar (STAF) býður okkur að  leigja sumarbústað Munaðarnesi í vetur.  Helgarleiga er 15 þús.  Hafið samband við Birnu Rósu Gestsdóttir  4771699/8465527 birnarosa@simnet.is.
16.05.2010
Vel heppnuð vorferð í Viðey
Hér er stór hluti þeirra 50 Norðfirðinga sem mættu í vorferð fégasins. Föngulegur hópur!

Laugardaginn 16. maí var farið í vorferð félagsins.  Að þessu sinni var hin sögufræga eyja Viðey fyrir valinu.  Þáttaka var góð, en um 50 manns mættu að þessu sinni.  Eftir að komið var út í Eyju fyrir hádegi fékk hópurinn fyrirlestur frá Guðlaugu Sigurðardóttur staðarhaldara um sögu eyjunnar og ábúendur hennar. Að því loknu dreifðist hópurinn um alla eyju enda misjafnt hvað menn vildu skoða.  Að lokinni göngu var safnast saman við Viðeyjarstofu og ýmist nestið rifið upp úr bakpokum eða veitingar keyptar.  Að því búnu var haldið til lands með ferjunni og þangað var komið Eins og sjá má á myndunum sem skoða má hér var veðrið með allra besta móti, sól 12 stiga hiti og hægur vindur og gerði það daginn enn skemmtilegri. 

Þeir sem tóku myndir mega gjarnan senda þær á vefstjóra (steini@hafro.is) og við bætum þeim með í myndasafnið hér á síðunni.