stjorn@nordfirdingafelagid.is     822-1709
   
Leturstærð
Þarftu gott helgarfrí?
Starfsmannafélag Fjarðabyggðar (STAF) býður okkur að  leigja sumarbústað Munaðarnesi í vetur.  Helgarleiga er 15 þús.  Hafið samband við Birnu Rósu Gestsdóttir  4771699/8465527 birnarosa@simnet.is.
28.02.2010
Gamlar ljósmyndir frá Norðfirði
ORG ættfræðiþjónusta SkeljanesiGuðmundur Sveinsson frá Mynda og skjalasafni Norðfjarðar hefur verið um helgina í Hólabrekkuskóla í Reykjavík og sýnt gamlar ljósmyndir. Tilgangurinn er að fá Norðfirðinga búsetta á höfuðborgarsvæðin til að skoða myndirnar og reyna að nafngreina sem flesta einstaklinga á gömlum ljósmyndum. Það hefur verið vel mætt í Hólabrekkuskóla og eldri Norðfirðingar skemmt sér vel við að skoða gamlar myndir úr heimabyggð.

Guðmundur verður áfram í Reykjavík til fimmtudags og hægt verður að hitta hann í húsakynnum ORG ættfræðiþjónustu að Skeljanesi í Reykjavík (sjávar meginn við flugvöllinn). Norðfirðingafélagið hvetur alla sem hafa tök á að skoða hjá Guðmundi gamlar myndir. Síminn hjá Guðmundi er 8920708.