stjorn@nordfirdingafelagid.is     822-1709
   
Leturstærð
Þarftu gott helgarfrí?
Starfsmannafélag Fjarðabyggðar (STAF) býður okkur að  leigja sumarbústað Munaðarnesi í vetur.  Helgarleiga er 15 þús.  Hafið samband við Birnu Rósu Gestsdóttir  4771699/8465527 birnarosa@simnet.is.
08.04.2010
Flottur á skíðum
Stefán Þorleifsson í fallegu veðri um páskanaStefán Þorleifsson, 94 ára snillingur sem allir Norðfirðingar þekkja vel, lætur sér ekki muna um að bregða sér á skíði þrátt fyrir aldurinn.  Við máttum til með að smella þessari mynd af honum sem Vilborg dóttir hans tók um páskana í Oddskarði.  Enda þótt skíðabúnaðurinn sjáist ekki á myndinni má gera ráð fyrir að skíðinn sem Stefán notar núna séu töluvert frábrugðin þeim búnaði sem hann notaði á sínum unglingsárum.