
Á menningarkvöld félagsins var boðið öllum fyrrverandi bæjarstjórum Neskaupstaðar.
Ragnar Pétursson frá Kvíabóli var bæjarstjóri í Neskaupstað frá 1943 til 1946. Ragnar hefur lengst af búið í Hafnarfirði, þar sem hann nu býr i íbúð að Hrafnistu. Ragnar tók við tækjarstjórastólnum af Jóni Sigfússyni í Bár en dóttir Jóns, Ragna var í fyrstu stjórn Norðfirðingafélagsins.
Logi Kristjánsson var bæjarstjóri í Neskaupstað frá 1973 til 1984. Logi er verkfræðingur og býr i Kópavogi. Logi tók við bæjarstjóra starfinu af Bjarna Þórðarsyni sem gengdi því frá 1950 til 1973, en hafði jafnframt verið bæjarstjóri tímabundið árið 1946.
Ásgeir Magnússon var bæjarstjóri frá 1984 til 1991 en hann er býr í dag á Akureyri og starfar hjá Samtökum Iðnaðarins.
Guðmundur Bjarnason var bæjarstjóri í Neskaupstað frá 1991 allar götur til 1998 þegar Neskaupstaður sameinaðist í Fjarðabyggð en hann var jafnframt fyrsti bæjarstjóri Fjarðabyggðar og gengdi því starfi allar götur til 2006. Guðmundur starfar nú hjá Alcoa á Reyðarfirði.

