
Afkomendur Tryggva Vilmundarsonar höfðu tekið saman efni um æfi hans og kveðskap fyrir menningarkvöld félagsins. Inn í upplestur á æfi Tryggva var blandað lausavísum og ýmsum kveðskap auk þess sem Tryggvi Vilmundarson yngri söng tvo bragi eftir afa sinn og Bjarni Tryggva söng svo einn brag við eigið lag.
Tryggvi var fæddur í Höfðahúsum á Fáskrúðsfirði 1938. Hann lést
7.maí 2005. Foreldrar hans voru Stefaníu Marta Bjarnadóttir, og Vilmundur Sigurðsson. Kona hans var Lilja Jóhannsdóttir frá Tröllanesi.
Þau áttu fimm börn það er Lilja elst, Vilmundur og Jóhann ( tvíburar) þá Bjarni og Stefanía yngst en hún lést aðeins tveggja ára.
Tryggvi og Lilja( Didda) hófu búskap í Kópavogi 1956 en flutt austur á Norðfjörð 1965 og bjuggu þar til 1988 er þau flytja á Höfn að undanskildu einu ári er þau búa í Þórshöfn í Færeyjum.
Tryggvi lærði til Netagerðarmanns á Netagerð Friðriks Vilhjálmssonar
og starfaði þar í allmörg ár en legnst af var hann til sjós á skipum Síldarvinnslunnar í Neskaupstað. Sýnishorn af kveðskap Tryggva má finna hér ásamt myndum frá menningarkvöldinu af sonum hans og barnabarni.

