stjorn@nordfirdingafelagid.is     822-1709
   
Leturstćrđ
Ţarftu gott helgarfrí?
Starfsmannafélag Fjarðabyggðar (STAF) býður okkur að  leigja sumarbústað Munaðarnesi í vetur.  Helgarleiga er 15 þús.  Hafið samband við Birnu Rósu Gestsdóttir  4771699/8465527 birnarosa@simnet.is.
30.11.2009
Gleđinnar strengir - nótnabók međ lögum Inga T.
Kápa bókarinnar ásamt mynd af Inga T og útgefenda bókarinnar Daníel ArasyniNýútkomin er bókin Gleðinnar strengir, en það er nótnabók með lögum Inga T. Lárussonar í útsetningum fyrir einsöng og píanó. Útgefandi bókarinnar er Daníel Arason.
Ingi Tómas Lárusson fæddist á Seyðisfirði 26. ágúst árið 1892. Hann fór snemma að hafa áhuga á tónlist og sýna hæfileika á því sviði. Hann naut þó ekki formlegrar tónlistarkennslu en bjó að því að Lárus faðir hans var hæfileikaríkur tónlistarmaður og leiðbeindi syninum, en fleiri munu þó hafa komið að því. Frásagnir eru af því að Ingi hafi samið sitt þekktasta lag, Sumarkveðja, einungis sjö ára gamall þó reyndar fari tvennum og jafnvel þrennum sögum af tilurð þess lags eins og reyndar fleiri laga Inga.
Ingi dvaldist víða um land um ævina en stærstan hluta starfsævi sinnar dvaldist Ingi þó í Neskaupstað þar sem hann var m.a. símstöðvarstjóri á árunum 1921 – 1936.
Tónlistin átti þó hug hans allan og þótti honum miður að geta ekki helgað sig henni og menntað sig betur í tónlist.
Er Ingi lést árið 1946 var ekki mikið til af útgefnum lögum eftir hann, en Ingi var ekki mikið fyrir að trana verkum sínum fram og fremur hirðulaus um að varðveita þau. Vitað er til þess að mörg handrit hans hafa glatast og fullvíst er að hann samdi talsvert fleiri lög en varðveist hafa. Árið 1948 gaf vinur Inga, Arreboe Clausen, út bókina Söngvasafn en Carl Billich sá um að gera lögin hæf til útgáfu. Í henni voru 27 lög í útsetningum ýmist fyrir einsöng, karlakór eða blandaðan kór. Þessi bók seldist upp á skömmum tíma og hefur síðan verið ófáanleg.

Á síðustu árum hafa fundist sjö óútgefin lög eftir Inga, ýmist í handritum hans, uppritunum annarra eða í munnlegri geymd. Hafa þessi lög nú verið útsett og inniheldur þessi bók því þau 34 lög eftir Inga T. Lárusson sem þekkt eru. Þau lög sem ekki voru til í útsetningum fyrir einsöng hafa verið útsett sérstaklega fyrir bókina, til að mynda hið þekkta Átthagaljóð sem birtist nú í fyrsta skipti á prenti fyrir einsöng. Þær útsetningar í bókinni sem eru nýjar eru unnar af sáu Stefáni Arasyni, Daníel Arasyni og Jóni Þórarinssyni. Útgáfa bókarinnar er styrkt af Þjóðhátíðarsjóði, Menningarráði Austurlands, Fjarðabyggð, SÚN, Eskju og Fiskimið og vil útgefandi koma á framfæri innilegum þökkum til styrktaraðila.

Bókin er væntanleg í verslanir í byrjun næstu viku og verður seld í Tónspil Neskaupstað, Bókabúðinni Eskju Eskifirði og Tónastöðinni Reykjavík. Einnig má panta hana hjá útgefanda í síma 8672921 eða á netfanginu danielarason@gmail.com