stjorn@nordfirdingafelagid.is     822-1709
   
Leturstærð
Þarftu gott helgarfrí?
Starfsmannafélag Fjarðabyggðar (STAF) býður okkur að  leigja sumarbústað Munaðarnesi í vetur.  Helgarleiga er 15 þús.  Hafið samband við Birnu Rósu Gestsdóttir  4771699/8465527 birnarosa@simnet.is.
06.12.2009
Myndir frá Laugardagskaffi í Kringlunni

Eins og félagsmenn þekkja orðið vel hittast Norðfirðingar í kringlunni fyrsta laugardag í hverjum mánuði.  Hefur þessi viðburður verið vel sóttur um árabil, en Jón Karlsson og Hákon Aðalsteinsson hafa haft veg og vanda að þessum viðburði í mörg ár.

Í gær, 5. desember var ágætis mæting og var margt spjallað og eins og sjá má á myndunum hér er gaman þar sem Norðfirðingar koma saman.