
Það er orðinn árlegur viðburður að Norðfirðingafélagið í samstarfi við séra Svavar Stefánsson prest í Fella- og Hólakirkju standi fyrir minningarathöfn um snjóflóðin sem urðu í Neskaupstað þann 20. desember 1974. Dóttir Svavars ástamt tveimur vinkonum sáu um tónlistarflutning og sr. Svavar flutti minningarorð um þá tólf sem létust þennan dag árið 1974 og mörgum norðfirðingnum er enn í fersku minni.
Norðfirðingafélagið þakkar sr. Svavari og hans fjölskyldu fyrir fallega athöfn og velvild í garð félagsins.
Meðfylgjandi eru myndir frá athöfninni og frá kaffinu sem fylgdi í kjölfarið.

