stjorn@nordfirdingafelagid.is     822-1709
   
Leturstærð
Þarftu gott helgarfrí?
Starfsmannafélag Fjarðabyggðar (STAF) býður okkur að  leigja sumarbústað Munaðarnesi í vetur.  Helgarleiga er 15 þús.  Hafið samband við Birnu Rósu Gestsdóttir  4771699/8465527 birnarosa@simnet.is.
24.01.2010
Aðalfundur og sólarkaffi 31, janúar
Frá sólarkaffi og aðalfundi 2009.

Nú styttist í aðalfund og sólarkaffi félagsins, sem haldið verður í safnaðarheimili Fella- og Hólakirkju sunnudaginn 31. janúar kl. 14.

Dagskrá aðalfundar er hefðbundin, þ.e. setning, skýrsla stjórnar, ársreikningar og önnur mál.

Á sólarkaffinu verður að vanda boðið til veislu.  Þar verður jafnframt dagskrá tileinkuð Svavar Lárussyni.  Birgir D. Sveinsson mun kynna Svavar. Þórun Lárusdóttir mun flytja nokkur lög Svavars við undirleik Hlöðvers Smára Haraldssona og fleiri norðfirskra listamanna. Þá verður á staðnum kynning á Gletting - riti um austfirsk málefni.  

Endilega minnið hvert annað á þessa uppákomu og að vanda er vonast til að sem flestir leggi til veitingar.

Aðgangseyrir er 1000 krónur.

Stjórnin.