Eitt af fjölmörgum áhugamálum mínum er að safna sönnum skemmtisögum af Norðfirðingum og gefa þær út á bók takist vel til. Því leita ég nú til ykkar góðir félagar um aðstoð. Þið getið sent mér línu eða hringt og ég tekið niður sem þið hafið fram að færa. Ég veit fyrir víst að af nógu er að taka og læt fylgja hér með eina góða;
Sigurður Sveinsson, oftast nefndur Siggi á Hólum var hæglátur maður og orðheppinn. Einhvern tímann þegar Siggi gekk ekki heill til skógar fór hann til læknisins. Eftir nokkra skoðun gaf læknirinn út þá skoðun sína að það væri ekkert að honum. Siggi þakkaði fyrir sig, borgaði og fór út. En á leiðinni út heyrðist hann tauta; það hefur ekki verið almennilegur læknir hérna síðan Páll í Hrauni dó. Þess ber að geta að Páll þessi var dýralæknir

