stjorn@nordfirdingafelagid.is     822-1709
   
Leturstærð
Þarftu gott helgarfrí?
Starfsmannafélag Fjarðabyggðar (STAF) býður okkur að  leigja sumarbústað Munaðarnesi í vetur.  Helgarleiga er 15 þús.  Hafið samband við Birnu Rósu Gestsdóttir  4771699/8465527 birnarosa@simnet.is.
01.05.2009
Norðfirðingur vekur athygli í Danmörku.
Sdr. Bjert KroNorðfirðingurinn Óðinn Hauksson rekur krá sem heitir Sdr. Bjert Kro, og er í bænum Bjert (Kolding) í Danmörku.

Það er fjallað um þessa krá í danska sjónvarpinu TV2 vegna þess að kráin bruggar sinn eigin bjór úr humlum sem ræktaðir eru í nágrenninu. Það kemur fram að hann hefur í boði mismunandi gerðir af bjór hússins.

Það var þáttur í TV2, danska sjónvarpinu um veitingastaðinn, sem einnig er gisitheimili. Húsið er byggt upphaflega árið 1855 en saga staðarins nær til 1759. Það er því löng hefð fyrir veitingahúsarekstri þar.

Heimasíða kráarinnar er: http://www.sdrbjertkro.dk/
Sjónvarpsþátturinn er hér: http://www.tv2regionerne.dk/reg2005/?id=469537&r=1

Til að gera fréttina vel norðfirska, þá er best að taka eftirfarandi fram: Óðinn er sonur Hauks Þórðarsonar frá Skógum í Mjóafirði. Hann flutti með foreldrum sínum til Grindavíkur þegar hann hefur verið ca. 10 ára, en hann var stundum fyrir austan á sumrin á unglingsárunum.

Það er full ástæða að óska Óðni til hamingju með allan dugnaðinn. Norðfirðingar sem eiga leið þarna um ættu ekki að láta Sdr. Bjert Kro framhjá sér fara.