Á sjómannadaginn hittust yfir 80 Norðfirðingar á Kaffi Reykjavík, en eins og flestum er kunnugt hefur félagið um nokkurra ára skeið staðið fyrir kaffisamsæti milli kl. 15 og 17 á þessum hátíðisdegi. Skemmst er frá því að segja að viðtökur voru mjög góðar og hefur sífeld aukning verið frá því að þetta var fyrst haldið. Það er svosem ekkert skrýtið - frábært fólk til að hitta og spjalla við undir dynjandi harmonikkuleik - og ekki skemma veitingarnar fyrir. Hægt er að skoða myndir frá deginum hér. 
