Starfsmannafélag Fjarðabyggðar (STAF) býður félagsmönnum Norðfirðingafélagsins í Reykjavík að leigja sumarbústað.
STAF keypti sé bústað í Munaðarnesi nú í vetur og þar sem það er nú alveg hinumegin á landinu fyrir félagsmenn munu þeir ekki nota hann mikið yfir veturinn. Því bjóða þeir okkur að leigja hann í vetur t.d. um helgar. Þetta er stór bústaður með 3 herbergjum og öllu sem til þarf þar með talið heitum potti.
Hægt er að skoða bústaðinn á vefslóðinni www.123.is/staf. Verðið er 15.000 fyrir helgina föstudag til sunnudags og ef um auka nótt væri að ræða þá er hún á 5.000.
Þeir sem eru áhugasamir um að nýta sér þetta góða tilboð STAF eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við Birnu Rósu Gestsdóttir 477 1699 / 846 5527 birnarosa@simnet.is

