
Neskaupstaður fékk kaupstaðaréttindi árið 1929 og fagnar því 80 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni af því efnir Norðfirðingafélagið til afmælisfagnaðar í Fella- og Hólakirkju þann 19. nóvember kl.20.00.
Heiðursgestir verða fyrrverandi bæjarstjórar Neskaupstaðar, þeir Ragnar Pétursson, Logi Kristjánsson, Ásgeir Magnússon og Guðmundur Bjarnason.
Dagskrá.
1. Stefán Þorleifsson, flytur hátíðarræðu kvöldsins. Neskaupstaður fyrr og nú.
2. Gamlar bíómyndir frá Norðfirði úr fórum Halldórs Jóhannssonar frá Heiðabýli og Magnúsar Hermannssonar.
3. María Bjarnadóttir, ævi og kveðskapur.
Hlé, léttar kaffi veitingar
4. Tryggvi Vilmundarson, ævi, kveðskapur og tónlist.
5. Óskar Björnsson, ævi, kveðskapur og tónlist.
6. Fyrrverandi bæjarstjórar heiðraðir.
7. Svavar Benediktsson, ævi, kveðskapur og tónlist. Flutt verða hin sígildu lög eins og Í Hallormsstaðarskógi, Einu sinni var (Svo skotinn sem hann afi var í ömmu) og Sjómannavalsinn (Það gefur á bátinn við Grænland)
Mætum öll og gerum okkur glaðan dag í góðra vina hópi.
Stjórn Norðfirðingafélagsins.

