
Menningarkvöld félagsins var haldið í Fella- og Hólakirkju í gærkvöldi (19. nóvember). Dagskráin var fjölbreytt að vanda og mættu um 250 manns til að hlíða á erindi, myndasýningar, tónlist og fl. Stjórn félagsins þakkar öllum þeim sem fram komu og gerðu þetta að fróðlegu og skemmtilegu kvöldi. Ekki má gleyma að þakka öllum þeim fjölmörgu Norðfirðingum sem mættu, en án áhorfenda hafa svona uppákomur engann tilgang. Það er gaman að vera í stjórn félagsins og koma að skipulagningu svona viðburða þegar viðtökurnar eru eins og þær voru.
Á næstu dögum munum við birta myndir frá samkomunni þannig að nú er um að gera að kíkja reglulega á heimasíðuna.
Fyrsta myndasyrpan er þó ekki frá því í gær heldur sýnum við gamlar myndir sem Birgir D Sveinsson tók saman og rúlluðu meðann hann fjallaði um ævi Svavars Benediktssonar og tónlist. Eftir það tóku Bjarni Ágústsson og Hlynur Ben tvö lög eftir Svarar sem hafa vermt hjörtu landsmanna um árabil. Með því að ýta á hnappinn hér fyrir aftan má skoða æviágrip Svavars sem Birgir D. Sveinsson tók saman og flutti á samkomunni. Fleiri myndir

