stjorn@nordfirdingafelagid.is     822-1709
   
Leturstærð
Þarftu gott helgarfrí?
Starfsmannafélag Fjarðabyggðar (STAF) býður okkur að  leigja sumarbústað Munaðarnesi í vetur.  Helgarleiga er 15 þús.  Hafið samband við Birnu Rósu Gestsdóttir  4771699/8465527 birnarosa@simnet.is.
20.11.2009
Menningarkvöld 2009 - Stefán þorleifsson.
Stefán heldur hátíðarræðu kvöldsins
Stefán Þorleifsson þekkir hvert mannsbarn sem búið hefur í Neskaupstað. Stefán flutti hátíðarræðu menningarkvöldsins og kom víða við í sinni frásögn.  Stefán þekkir sögu Neskaupstaðar betur en flestir aðrir, enda hefur hann vaxið og dafnað með byggðalaginu í meira en 90 ár.
Í erindi sínu tengdi hann á skemmtilegan hátt nýja og gamla tíma og fór um víðan völl.
Saga sjúkrahússins, skólanna, sundlaugarinnar, útgerðar og fleiri þátta eru málefni sem Stefán ræddi í sínu erindi. Jafnframt var Stefáni hugleikið sá mikli styrkur sem atvinnulífið hefur veitt til ýmissa mála tengum líknarmálum og tómstundum í bæjarfélaginu.  Til dæmis nefndi hann að hollvinasamtök fjórðungssjúkrahússins hefðu verið fyrstu samtök þessarar gerðar á landinu og verið fyrirmynd flestra annarra hollvinasamtaka heilbrigðisstofnanna um land allt.  Jafnframt nefndi hann þátt atvinnulífsins og kom fram í máli hans að fyrirtæki í bænum hefðu styrkt íþróttafélög af stórhug um langt árabil.

Norðfirðingafélagið þakkar Stefáni þann heiður sem hann sýndi okkur öllum með nærveru sinni og stórskemmtilegu og fróðlegu framlagi á Menningarkvöldinu.  Myndir þær sem fylgdu ræðu Sefáns má nálgast hér.