stjorn@nordfirdingafelagid.is     822-1709
   
Leturstćrđ
Ţarftu gott helgarfrí?
Starfsmannafélag Fjarðabyggðar (STAF) býður okkur að  leigja sumarbústað Munaðarnesi í vetur.  Helgarleiga er 15 þús.  Hafið samband við Birnu Rósu Gestsdóttir  4771699/8465527 birnarosa@simnet.is.
08.02.2009
Rokkveisla á Broadway 13. febrúar
Rokkhátíđin 2003.  Frá vinstri: Ágúst Ármann Ţorláksson, Karl Jóhann Birgisson, Ţorlákur Ćgir Ágústsson, Jón Hilmar Kárason, Guđmundur Gíslason, Marías Ben. Kristjánsson, Smári Geirsson, Viđar Guđmundsson, Bjartur Sćmundsson og Helgi Georgsson.Tónlistarveisla austfirðinga í Reykjavík er að þessu sinni helguð gamla rokkinu frá 1950-1964. Rokkveisla síðasta árs á Norðfirði var jólasýning með jólalögum og því er þessi sýning sérstaklega sett upp fyrir brottflutta og gesti þeirra sem hafa jafnan fjölmennt á Broadway. Það er stórhljómsveit Ágústar Ármanns sem sér um undirleik í sýningunni.
Hana skipa auk Ágústar Ármanns, Jón Hilmar Kárason, Marías B. Kristjánsson, Viðar Guðmundsson, Helgi Georgsson og Einar Bragi Bragason ásamt brottfluttum tónlistarmönnum að austan.

Söngvarar í sýningunni eru: Smári Geirsson, Guðmundur R. Gíslason, Hálfdán Steinþórsson, Hlynur Benediktsson, Bjarni Freyr Ágústsson , Heiðrún Helga Snæbjörnsdóttir, Stella Steinþórsdóttir, Sigurjón Egilsson, Jóhanna Seljan, Sigfús Ó Guðmundsson, Soffía Björgúlfsdóttir og Bjarni Halldór Kristjánsson.

Kynnar í sýningunni eru Ágúst Ármann og Smári Geirsson.

Boðið er upp á veislumáltíð fyrir sýningu.

Einnig er hægt að kaupa miða sérstaklega á sýningu og dansleikinn.

Miðapantanir á Broadway í í síma 533-1100.

Allar nánari upplýsingar veitir Guðmundur R. Gíslason bgbros@simnet.is